Bara að prófa...

MyHeritage: Family tree - Genealogy - Celebrity - Collage - Morph


Það er rétt..

..

Watch your thoughts, for they become words.

Watch your words, for they become actions.

Watch your actions, for they become habits.

Watch your habits, for they become character.

Watch your character, for it becomes your destiny.



-Er að skoða ýmsar tilvitnanir, og ég er ekki frá því að það leynist mikill sannleikur í mörgum þeirra!

Kv. Hrund


Enn skelfur jörðin...

... þetta er ekki eins skemmtilegt þegar maður er einn eftir vakandi í húsinu sínu og jörðin tekur upp á því að hrista það svona stöku sinnum.

Ég taldi litlu skjálftana sem hafa komið upp í dag á þessu svæði og mér sýndist þeir vera að nálgast 100 eða komnir yfir það, þá síðan ég kom heim.
(Skoðaði á vedur.is)

 Það er svona 95 skjálftum of mikið fyrir mig:)

Jæja, ætla að freista þess að sofna svona áður en glösin minna á sig enn einu sinni.

Kv. Hrund


mbl.is Áframhaldandi skjálftar við Selfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskjálfti eða glös með þörf fyrir athygli..

..ég var nú bara í sakleysi mínu hérna heima að taka til eftir kvöldmatinn þegar glösin í eldhússkápnum létu allt í einu hressilega vita af tilveru sinni með tilheyrandi glamri.

Ég var nú smá stund að átta mig á því hvað þetta var (þar sem ég virðist ekki verða vör við jarðskjálfta almennt, því ég missi ALLTAF af þeim.) en naut þess svo, þegar ég loksins áttaði mig á því hvað þetta var:), að fylgjast með náttúruöflunum gera vart við sig´.
Ég segi nú bara eins og hann pabbi minn "Mikið getur maðurinn orðið agnarsmár þegar náttúruöflin hreyfa sig aðeins".

Það hlaut að koma að því að það gerðist e-ð spennandi á Selfossi, hér er lítið annað hægt að gera nema læra, sofa, borða og labba í skógræktina. Nema þegar það koma jarðskjálftar:)
Mér finnst ég vera svolítið aftur í tímanum þegar ég hugsa til þess að eina skemmtunin hérna utan eðlilegra grunnþarfa þurfi að vera af náttúrunnar hendi:)
Blast from the past.

 Jæja ætla að fara og gá hvort ég finni fleiri skjálfta áður en þeir lognast algjörlega útaf.
-hef lúmskt gaman af þessu svona eftir á! Allavega meira heldur en þegar þeir standa yfir.


Kv. Hrund


mbl.is Skjálftahrinan á Selfossi ekki talin fyrirboði um stærri skjálfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggablogg....

.... Jæja þá er ég komin inn á þetta "alræmda" moggablogg!
Það hlaut að koma að því fyrr eða síðar. Er búin að vera húkt á eldheitum umræðum á bloggsíðum hérna undanfarna daga.
Svona er gaman að uppgötva nýja hluti.

Ég á nú reyndar ekki von á því að vera einhver hörku bloggari. En sjáum hvað frökenin endist í þessu:)

Kv. Hrund

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband